Írena-Unnur-Harpa-AldaMarín-Björk-Sigurborg-Anna-Sif-Berglind-Tinna-Edda-Ösp-Hjördís-Birna-Helga

Velkomin í undirheima nöldursins

31.08.2006 18:10:47 / EddaKarls

Bara ef lífið væri jafn einfalt og ostur

Þetta er slagorðið í ostaauglýsingu sem verið að sýna í sjónvarpinu um þessar mundir,já þeir eru svo sannarlega einfaldir og bragðgóðir!

En það er eitt sem gleymist í umræðunni um einfaldleika osta og það er að finna góðan ostaskera.  Það er bara hreint ekki einfalt skal ég segja ykkur.  Nú þegar sit ég upp með þrjá gjörsamlega vonlausa ostaskera og ég er bara búin að búa í tvær vikur! Öll komum við frá heimilum þar sem góðir ostaskerar eru til, skerar sem ná að skera fullkomnar sneiðar, ekki of þykkar né þunnar, án þess að fokka öllum ostinum upp.  En ég verð bara að spyrja mig hvað ætli það hafi tekið foreldra okkar margar tilraunir að kaupa þann eina rétta. Endlausar ferðir í hinar og þessar búsáhaldabúðirnar í leit að þeim eina sanna.  Ég er þegar búin með þrjár tilraunir og ég er að gefast upp:whut: og svo er það nú þannig að það er ekki nóg með að erfitt sé að finna góða ostaskera heldur eru þeir stundum bara einfaldlega ekki til í verslunum.  Má þar nefna IKEA, já IKEA, ég hélt nú að allt fengist þar en í öllum mínum þúsund IKEA ferðum sem ég hef farið á síðustu tveimur vikum hefur ekki fengist einn einasti ostaskeri. Ohh þetta er erfitt líf:$

En annars er allt gott að frétta af mér, skólinn byrjar á mánudaginn og notalegu lífi mínu lokið í bili;) Ég er búin að hafa það alltof gott hérna, bara dunderí á daginn og sjónvarpsgláp á kvöldin.  Eiginlega farin að hlakka til að sökkva mér í bækurnar og koma á fastri rútínu, það er alveg nauðsynlegt fyrir geðheilsuna...;)

Ég bið að heilsa í heiðardalinn til þeirra sem eru þar, hitti hinar örugglega á röltinu í reiðileysi um Háskólasvæðið;)

Kveðja

Sálfræðineminn


» 12 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 10:45:44 / Birna

gras?

Er það bara ég eða er verið að auglýsa gras á heimasíðunni okkar..?

Er þetta ekki svona trix eins og

tuborg léttöl

mér finnst nú bara eitthvað gruggugt við þetta..


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 18:38:20 / Björk

Meget meget vigtigt!!!

Hey yo!

Ætlar einhver með á Sálina og Gospel 15. sept í Höllinni???

Ef, láta mig þá vita asap - það fer nemlig að vera uppselt8)

Sjáumst í Uno...eða annars staðar;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 12:41:07 / UnnurLilja

Fjarðaál team village-part seven

Á morgun get ég sagt á morgun fer ég heim.  jibbíjei.

En tilgangurinn með þessari færslu er að endurvekja málefni sem við höfum rætt um áður og leystum greiðlega í það skiptið.

Sumarbústaðaferð! 

Það var ógó gaman í fyrra eins og við munum og verður ekki síðra i ár.

Hver veit nema hinir mögnuðu Undercoverbrothers líti við með nýjar sögur af afrekum sínum í farteskinu.  Annáll ársins verður lesinn og kannski ný myndasyrpa af einhverjum ógókynþómódelum.

Kostnaði verður stillt í mikið hóf og hef ég nauðug viljug sett sjálfa mig í skipulagsnefnd svo ég hafi eitthvað að gera í vinnunni.

Helgi verður ákveðin síðar þegar írena fær vaktaplanið sitt, séróskir teknar til greina ef þær koma fram fyrir klukkan sex í dag.

Ekkert vesen stelpur....plísímen!


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 16:08:05 / UnnurLilja

Fjarðaál team project-part six

Já það er greinilegt að America´s next top model er stökkpallur fyrir frægðina. Í framhaldsþættinum Veronica Mars sem sýndur er á rúv á þriðjudögum leikur Naima Mrs. Dumas, enskukennara sem kemur fram í rúma mínútu af þættinum.

Það eru fullt af pólverjum fluttir inn í skálann sem ég bý í.  Þeir eru óhræddir við að sýna nekt og labba fram og aftur um gangana með einungis handklæðispjötlu til að skýla sínu allra heilagasta.  En ég ætti nú að vera vön að þurfa að standast svoleiðis freistingar, er nú einu sinni búin að sjá Kalla Korts nakinn.


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 16:35:32 / UnnurLilja

Þjóðómyndir!

Eru komnar inn á sömu slóð og fyrir neðan.  Ég skrifaði meiraðsegja undir þær allar næstum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 10:54:45 / UnnurLilja

AMMLI!

Til hamingju með tuttugu árin elsku Hjördís okkar!!

 

Eigðu æðisgenginn dag í vinnunni:)

 

Stelpurnar


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 10:35:04 / UnnurLilja

Fjarðarál team village - part five

vá hvað mig langar á Laugarvatn!! Er nánast með kökkinn í hálsinum yfir því að fara aldrei þangað aftur!  En svo man ég eftir stærðfræði og eðlisfræði og þá langar mig ekki alveg eins mikið.

Lífið gengur sinn vanagang hér á hjara veraldar.  Reyndar var brjálað að gera í gær, skemmtileg tilbreyting það. 

Þjóðómyndir eru að renna í hlaðið, mjög ritskoðaðar þó,

http://www.picturetrail.com/unnurlilja

jor bílovd einalkönt


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 12:24:59 / Ölli

Good times.....

Takk fyrir gærkvöldið elsku rúsínubolluanalkrúsídúllurnar mínar;)  Alltaf gaman að rifja upp Þjóðó og ræða um landsins gagn og nauðsynjar...

Annars er ég nú bara að blogga í síðasta skipti í vinnunni því þetta er jú NÆST síðasta vaktin mín hérna EVER!! mér til mikillar gleði og yndisauka OG mér varð að ósk minni að leiðinlegasta manneskja í heimi kom ekki í sund Vííí´:D:D:D:D

Svo vil ég auðvitað hvetja alla til að fjárfesta í nýjasta tölublaði hins merka rits Séð og Heyrt til að berja augum ykkar einlægu, einstaklega fagra verð ég að segja :lol:  Jájá stelpur mínar, það er celeb meðal vor;)

Hlakka til að hitta ykkur ALLAR annað kvöld (Harpa ég skal bara lita rótina með tússpenna ekki málið) þetta verður mega stuð trúi ég!!!

Sjáumst

Ölli celeb;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 00:51:33 / A.Hansen

Leikhús?

Sælar dömur og aðrir velunnarar;)

Langt er nú liðið frá minni síðustu færslu en Unnur stendur sig prýðilega í að halda síðunni lifandi... Ég er annars bara alltaf að vinna eins og venjulega og það er bara fínt... Sigurður Gísli er þessa stundina bara að njóta lífsins úti í Búlgó, vá hvað við vorum vitlausar að fara á undan!!! Ég er sko bara öfundsjúk!:$ En það verður nú líka hörkustuð hjá okkur um helgina, Sálin beibí... svo er líka blómstrandi ball í Hveragerði helgina eftir það, væri nú helvíti gaman ef þið kæmuð með þangað;) Þetta djamm ætlar ekki að hætta!;) erfitt sumar maður, hehe;)

Annars langar mig líka til þess að auglýsa eftir eiganda svartrar Laura Aime kápu sem ég var allt í einu komin með í hendurnar á Stuðmannaballinu.. ef þið vitið um einhvern sem hefur týnt kápunni sinni endilega látið mig vita!

___________________________

En tilgangur þessarar annars ómerkilegu færslu var nú sá að mig langaði að vita hvort einhverjar ykkar hefðu áhuga á að kíkja á sýningu Leikfélags Akureyrar "Fullkomið brúðkaup" í Austurbæ áður en hætt verður að sýna það? Ég hef nefnilega heyrt að þetta sé ótrúlega fyndið, sami höfundur og að "Sex í sveit" ef þið sáuð það einhvern tíma? Væri gaman að kíkja allar saman:)

Veit að það verður sýnt núna á föstudaginn 18. ágúst og svo líka föstudaginn 26. ágúst... held nú samt að seinni dagsetningin sé sniðugri... Miðinn kostar 2.900 kjell..
__________________________

En ætli maður fari ekki að halla sér... hlakka til að hitta ykkur á laugardaginn, ef ekki fyrr;)

Hansen

» 13 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 13:01:57 / UnnurLilja

Fjarðarál team village - part four

Ekkert merkilegt hefur á daga mína drifið síðan á laugardagskvöldið og því hef ég ekki frá neinu að segja hér.  Ég fór reyndar á Egilsstaði í morgun að sækja Kalla á flugvöllinn og villtist smávegis eins og við var að búast.  Þá kom sér nú vel að eiga víðförul systkini sem hafa búið á öllum landshornum og gátu miðlað af reynslu sinni.

Eru þið ekki allar búnar að taka frá fimmtudagskvöldið næsta frá? Ég sé um heimatilbúnar veitingar svo þið megið koma óétnar.

Ef ykkur langar á kenderí þá er ykkur velkomið að fá ykkur í tána, ég ætla samt ekki að bjóða. (Anna, ert þú til í það kannski?)

Mæting skal vera klukkan hálf níu.(Nei Hansen þú sást vitlaust, mæting er HÁLF SEX) 

 Þið sem eigið myndir komið með þær, var að frétta að því að Aldís ætti nokkrar góðar.

Jæja Bubbles kallar, bleble


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 08:51:47 / UnnurLilja

Fjarðarál team village-part three

Í gær þegar ég gekk inn í matsalinn blöstu við mér eldhúsfólk með mexíkanahatta og svona röndótt teppi eins og mitt héngu út um allt.  Þá rann upp fyrir mér að það væri mexíkóskt þema í kvöldmatnum.  Ekki varð þú kátínan minni hjá mér þegar ég mundi eftir því sem sagt hafði verið á öryggisnámskeiðinu ,,að þema í kvöldmatnum væri til að starfsmenn Fjarðaáls hefðu til einhvers að hlakka." Ég átti í alvörunni bágt með að brosa ekki þarna alein í mínum heimi.  Hvernig er hægt að hlakka til eins ógeðslegra matfanga og þarna. 

Eins gott að ég fór á þetta námskeið, annars hefði ég bara ekkert vitað hvað gengi á í gær. 

Vonandi skemtmtuði ykkur vel í nótt, talaði allavega við Önnu í morgun þegar ég vaknaði, þá var hún á leiðinni heim í banastuði.

Later, júellbí......haha þetta hljómar ekki eins vel og öldu.


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 10:05:15 / UnnurLilja

Fjarðarál team village-part two

Í gær uppgötvaði ég mér til mikillar gleði þegar vinnudagurinn minn var á enda að það væri föstudagskvöld.  Og hvað getur maður gert sér til upplyftingar á föstudagskvöldi milli sex og átta á hjara veraldar?

Nú auðvitað farið í sund!

Ég lagði því upp í langferð, rölti af stað í hægindum mínum og mætti svona um sex hundruð pólverjum sem voru að koma úr ríkisferð.  Þeir fá semsagt frí á sunnudögum.  Hvasst var úti og hárið mitt sveiflaðist fagurlega í vindinum.  

Eftir um tuttugu mínútna göngu kom ég loks að sundlauginni.  Verið var að framkvæma mikið þar í kring svo ég átti í stökustu vandræðum með að finna innganginn.  Eftir að hafa hringsólað kringum bygginguna fann ég þó loksins hurðina og gekk inn og brá heldur í brún.

Ein innilaug og einn heitur pottur úti fullur af pólverjum í speedo. 

Getur lífið orðið öllu ánægjulegra?

Skemmtið ykkur á balli í kvöld, ekki hringja í mig eftir níu og fyrir fimm.  Ég mun hafa kvalitítæm með bestu vinkonunni upp í rúmi. (Vikunni semsagt.)

    


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 23:01:10 / AldaMarÍn

Un Title

Bon soir litlu labbakútarnir mínir!

Ætla að byrja á að þakka fyrir geðBIlAÐA þjóðhátíð, fer ekki að hefjast niðurtalning í næstu eða??

En sko já..

Er ekki kominn tími á annað djamm eða? Ef ég skil málin rétt þá höfum við ekki farið á EITT ball í hele sommeren (fyrir utan Önnu, hún hefur ekki sleppt úr einni helgi held ég..) !!!! Og á ekki að gera eitthvað í því? Okkur Björk langar svo endalaust mikið á eitthvað ball og við vitum að Írena er heit líka..

Það er eitthvað svo margt í boði þessa helgina að ég veit bara ekki hvað!

Töðugjöld

Spurning samt um að eyða frekar deginum þar ég held að þið séuð flestar sammála mér í því að nenna ekki að fara bara á Krilla - eða hvað?

Ölfushöll

Trabant - Stuðmenn - einhver DiskaÞeytir ? Ég væri til...

Þorlákshöfn

Í SVÖRTUM FÖTUM

Muniði hvað þeir voru GÓÐIR í Eyjum??? Ég og Bjölli erum allaveganna heitastar fyrir þessu dæmi sko!

Værum líka alveg til í að vita hvert straumurinn liggur....

Hvað segiði með það? vona að sem flestar sjái þetta svo við getum gert eitthvað saman.. gætum hist hjá mér fyrir.. fyrir eða eftir kvöldvökuna eða eitthvað! ég veit að Björk er að vinna til miðnættis, eruð þið hinar að wörka?

Let us know!!

eiemmkei


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Leitarbox

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 14 febrúar
Dagsetning
21. mars 2010
||SkóLArniR||