Sorry að ég sé að blogga yfir þig Unnur mín.
En ástæðan fyrir mínu mjög svo óvænta bloggi er það að ég vildi
vekja upp eitt umræðuefni Búlgaríuferðarinna.. 
BúlgaríuGullsPallíettuÍþróttaSkórnir hennar Sigurborgar sem þið
hélduð að enginn á Íslandi myndi kaupa sér..Nema ég
náttúrulega.
En viti menn.. hvað haldi þið að ég hafi séð með berum augum
síðastliðinn þriðjudag???? 
GullSemelíuÍþróttaSkó....
og þeir voru ekki í búðarglugga á
Laugarveginum heldur á fótum eins tannlæknanemans... Mjög fyndið!!!
Og ég ætlaði að láta mynd af skónum fylgja með en þar sem ég
gleymdi tölvusnúrunni til að tengja myndavélina í hjá tengdó þá
verð ég bara að bíða með það til betri tíma..... 
en eitt annað.. Getum einhver sagt mér ástæðuna fyrir því af
hverju ég verð MIKLU OFTAR veikari hér í Reykjavík en heima í
Þykkvabæ??? Ég er ALLTAF veik og ég þoli það ekki!!!! Er t.d. veik
í dag, missti af mjög mikilvægum tannvaxtíma!!! iss piss...
Og já tvennt í viðbót víst.. Ég auglýsi hér með eftir minni
ÞJÓÐÓ 2006 nöldupeysu sem hefur ekki sést síðan á þjóðí 2006.. Skil
ekki alveg af hverju.. 
Og ég auglýsi líka eftir þeim tveimur aðilum sem eiga eftir að
borga ÞJÓÐÓ 2006 peysurnar.. En ef þið eruð allar búnar að borga þá
auglýsi ég bara eftir pening Unnur mín.. 
En ég er farin að læra efnafræði og ég sé ykkur öruglega ekki
fyrr en... hmm... 21 október í sumarbústaðnum.. 
Kvef og hnerrkveðjur úr Birkihvamminum.. 
Sigurborg Sif